Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íranar skipuleggja harðar gagnárásir eftir hótanir Trumps

Íranar vara við hörðum gagnárásum eftir hótanir Bandaríkjaforseta í gær um árásir sem færi Íran aftur til steinaldar. Stríðið milli ríkjanna hefur nú varað í nær fimm vikur. Hótanir Írana koma eftir ávarp Bandaríkjaforseta í gær þar sem hann hótaði mjög hörðum árásum á Íran næstu tvær til þrjár vikur sem myndu færa Íran aftur til steinaldar. Háværar sprengingar hafa heyrst í miðborg Tehran, höfuðborg Írans, í morgun. Þá er stærsta stálverksmiðja landsins óstarfhæf eftir árásir. Í morgun hafa Íranar hert árásir á Ísrael.Reykur í Tehran, höfuðborg Írans, í gær eftir árásir herja Bandaríkjanna og Ísraels.EPA / ABEDIN TAHERKENAREH
Íranar skipuleggja harðar gagnárásir eftir hótanir Trumps

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta