Mennta- og barnamálaráðuneytið telur ekki ástæðu til að endurskoða samanburð á kennsludögum og skóladögum.Gögn Hagstofunnar sýni að töluverður munur er á fjölda skóladaga og fjölda kennsludaga í grunnskólum landsins.Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. VILL LENGJA SKÓLAÁRIÐ OG FJÖLGA KENNSLUSTUNDUM Sérfræðingar ráðuneytisins unnu að gerð minnisblaðs, sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, lagði fyrir ríkisstjórn í síðustu viku.Inga vill lengja skólaárið og fjölga kennslustundum, til að bæta námsárangur íslenskra nemenda.Minnisblaðið hefur verið gagnrýnt af kennurum, meðal annars fyrir skilgreiningu á skóladögum annars vegar og kennsludögum hins vegar.Í minnisblaðinu segir að skóladagar á Íslandi séu 180 dagar samkvæmt grunnskólalögum og fjöldi k