Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er væntanlegur til Washington í næstu viku. Fjölmiðillinn Reuters hefur eftir talsmanni bandalagsins að ferðin hafi verið skipulögð fyrir löngu. Reuters hefur einnig staðfestingu frá Hvíta húsinu. Heimsóknin er á viðkvæmum tíma innan NATO því Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því ítrekað yfir í gær að hann væri að íhuga að draga Bandaríkin úr bandalaginu því aðildarríkin hafi ekki viljað senda herskip sín til Hormússunds. Íransher hefur lokað siglingaleið um sundið fyrir ríkjum sem þeir skilgreina sem óvinveitt eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir fyrir rúmum mánuði. Frá fundi Rutte og Trumps í október 2025.EPA / AARON SCHWARTZ / POOL