Kjartan Guðmundsson, maðurinn sem lenti í alvarlegu bílslysi í Suður-Afríku í desember, er látinn. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Hann var 46 ára.Kjartan hefur verið á gjörgæslu meira og minna frá því að slysið varð en hann var fluttur til Íslands frá Suður-Afríku í febrúar. Bílslysið varð tveimur öðrum, móður Kjartans og dóttur, að bana.Ómar Sigurðsson, vinur Kjartans, segir í samtali við fréttastofu að Kjartan hefði verið með svokallaða fjölkerfalíffærabilun og hafi hrakað mikið í vikunni. „Þetta er barátta sem við töpuðum. Það er rosalegur missir af honum.“