Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjálfstæðismenn og óháðir kynna lista í Vogum

D-listinn, Sjálfstæðismenn og óháðir í Vogum, hefur kynnt lista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.Oddviti listans og bæjarstjóraefni er Björg Ásta Þórðardóttir lögfræðingur. Í 2. sæti er Guðmann Rúnar Lúðvíksson, varabæjarfulltrúi og starfsmaður hjá Landhelgisgæslunni. Í 3. sæti er Hulda Blöndal, deildarstjóri hjá Klettabæ, og í 4. sæti Kristín Arna Hjaltadóttir leikskólakennari.„Ég er bæði þakklát og auðmjúk gagnvart því verkefni sem fram undan er. Hér erum við með sterkt teymi sem mun eingöngu styrkjast eftir því sem tímanum vindur fram. Við erum samhentur hópur sem er tilbúinn að taka ábyrgð, leggja sitt af mörkum og vinna fyrir samfélagið okkar,“ segir Björg Ásta í tilkynningu.
Sjálfstæðismenn og óháðir kynna lista í Vogum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta