Geimfarinu Orion var skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída í gærkvöldi.„Við förum fyrir allt mannkynið,“ sagði hinn kanadíski geimfari Jeremy Hansen fyrir skotið.Fylgjast má með beinni útsendingu NASA frá ferðinni hér fyrir neðan.Fjórir geimfarar eru um borð í geimfarinu, Bandaríkjamennirnir Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch ásamt Jeremy Hansen. Þau ferðast nú á sporbaug um jörðu áður en haldið er af stað í átt að tunglinu.Útlit var fyrir að geimskotinu yrði frestað um stund vegna tæknilegra örðugleika en geimfarið fór á loft á ellefta tímanum.Geimfararnir munu þó ekki lenda á tunglinu heldur fljúga í kringum það. Þannig ferðast þeir lengra frá jörðinni en í nokkurri annarri mannaðri geimferð í sögunni, alls um 405 þúsund kílómetra.Þá mun áhöfnin einnig sjá hina