Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Engin heilsugæsla á Hofsósi

Lokunin er talin skila 7-9 milljóna króna sparnaði. Húsnæði HSN á Hofsósi er gamalt og lúið og dýrt að ráðast í framkvæmdir.HSN telur að einstaklingar sem áður sóttu sér læknisþjónustu á Hofsósi hefðu hvort eð er þurft að fara á Sauðárkrók til þess að fara í apótek og aðrar rannsóknir og gætu því fengið betri þjónustu þar.Íbúar hafa þó bent á að áður hafi verið meiri þjónustu að fá á staðnum, til dæmis voru lyf send frá Sauðárkróki til Hofsós og því bílferðin óþörf.Sveitastjóri Skagafjarðar, Sigfús Ingi Sigfússon, harmar niðurstöðuna og þjónustuskerðinguna. Hann hefur komið mótbárum sínum á framfæri við ráðuneytið og HSN.
Engin heilsugæsla á Hofsósi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta