Þjóðsögur, rímnakveðskapur og alls kyns gersemar eru aðgengilegar á vefnum Ísmús sem er gagnagrunnur um íslenskan músík- og menningararf. Í upphafi var áhersla lögð á miðlun heimilda um íslenska tónmenningu en með tímanum hefur vefurinn stækkað og hefur meðal annars að geyma mikinn fjölda hljóðritana úr þjóðfræðisafni Árnastofnunar með viðtölum við fólk sem segir sögur, kveður rímur og vísur og syngur sálma, þulur og kvæði.Elstu upptökurnar sem aðgengilegar eru á vef Ísmús eru frá því í byrjun síðustu aldar og voru gerðar á vaxhólka.„Það er mjög erfitt að heyra hvað er á þeim upptökum. Þær eru mjög gamlar og áhugaverðar. Mig minnir að elsti heimildarmaðurinn sem hægt er að hlusta á sé fæddur í kringum 1830,“ segir Trausti Dagsson. Hann er þjóðfræðingur og forritari og verkefnastjóri í uppl