„Mörg okkar eru reglulega að velta fyrir sér hvað eigi að hlusta eða horfa á, hvaða tónleika eigi að fara á og svo framvegis. Í Miðstöðinni ætlum við að reyna að svara þessum spurningum,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, um þennan nýja vikulega sjónvarpsþátt sem hann mun stýra.„Það er svo ótrúlega margt skemmtilegt í gangi og við ætlum að beina sjónum okkar að því. Við ætlum að heimsækja áhugavert fólk og fá góða gesti í myndver til að kryfja helstu strauma og stefnur. Svo verður lifandi tónlist og þannig mætti áfram telja,“, útskýrir Siggi.Miðstöðin verður á dagskrá RÚV á fimmtudagskvöldum kl. 20.15 og fyrsti þátturinn fer í loftið fimmtudaginn 9. apríl.„Í fyrsta þættinum fáum við að kynnast nýrri hlið á tónlistarmanninum Friðriki Dór, hlið sem ég veit að