Gular viðvaranir eru í gildi víða á landinu í dag. Sem stendur er gul viðvörun í gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra og miðhálendi. Suðaustan hvassviðri eða stormur er víða á suðvesturströnd landsins. Á Norður- og Austurlandi er þurrt að mestu. Þó lægir hratt með morgninum en búast má við éljum síðdegis. Gular viðvaranir falla úr gildi á Breiðafirði, Faxaflóa og Suðurlandi eftir klukkan 10:00. Þá færist veður yfir Norður- og Austurland þar sem búast má við ákveðinni suðaustanátt og ofankomu fram undir miðnætti. Á hádegi tekur gul viðvörun gildi á Norðurlandi eystra og klukkan tvö tekur gul viðvörun gildi á Austurlandi að Glettingi.Hiti verður um eða yfir frostmarki. HÆTTA Á AÐ FÆRÐ SPILLIST Í DAG Leiðindaveður verður því víða á landinu í dag og gæti