Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ný lög tvöfalda refsingu við samkynhneigð — alþjóðasamfélagið bregst rólega við

Bassirou Diomaye Faye, forseti Senegal, hefur staðfest lög sem tvöfalda refsingar við samkynhneigð eða „brotum gegn náttúrulegu eðli“ eins og það er kallað. Frumvarp þess efnis var samþykkt með miklum meirihluta í þinginu í mars. Fimm til tíu ára fangavist liggur nú við því að eiga í samkynja sambandi en refsingin var eins til fimm ára fangelsi. Þeirra sem fundnir eru sekir um að stuðla að eða fjármagna slík sambönd getur beðið þriggja til sjö ára fangelsi. Margir Senegalar telja samkynja sambönd afbrigðileg og stuðning við málstað hinsegin fólks vestrænan innflutning sem brjóti gegn þarlendum gildum. Alþjóðasamfélagið hefur af hálfvelgju brugðist við lagabreytingunni í Senegal öfugt við sambærilegar aðgerðir í öðrum Afríkuríkjum. Amnesty International hefur ekki tjáð sig enn. Mannréttinda
Ný lög tvöfalda refsingu við samkynhneigð — alþjóðasamfélagið bregst rólega við

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta