Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu hvetur Bandaríkin og Ísrael til að draga úr árásum á Íran. Helstu markmiðum sé náð og efnahagur heimsins þoli ekki við til lengdar. Albanese sagði í ræðu sem hann hélt í höfuðborginni Canberra að öllum helstu markmiðum hernaðarins gegn Íran sé náð.Hann segir allan herafla Írana orðinn í lamasessi, hvort sem er á landi, legi eða í lofti. Óljóst sé hverju megi áorka með áframhaldandi árásum.Hins vegar sé deginum ljósara að því lengur sem stríðið dragist á langinn því þyngri verði byrðarnar á efnahag heimsins. Albanese hefur ítrekað sagt að Ástralía vilji ekki dragast inn í átökin.Áströlsk stjórnvöld hafa reynt að milda höggið af síhækkandi eldsneytisverði með því að lækka álögur á það og loforðum um lán til fyrirtækja í kröggum. Ástralir reiða sig á