Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur ákveðið að hefja agamál gegn aðalsaksóknaranum Karim Khan eftir að hafa fengið nýjar upplýsingar um ásakanir gegn honum fyrir kynferðisbrot gegn kvenkyns aðstoðarmanni á skrifstofu hans. The Washington Post hefur þetta eftir ónafngreindum heimildarmönnum kunnugum málinu. Khan, sem rannsakar stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og stríðsglæpi, er í leyfi vegna málsins. Hann þvertekur að hafa brotið af sér en blaðið segir skýrslu rannsakenda Sameinuðu þjóðanna og frásagnir vitna renna stoðum undir ásakanirnar. Þrír dómarar segja gögnin ekki hafin yfir vafa og lögmenn Khans segja þau ekki benda til brota, samkvæmt umfjöllun Reuters. Fulltrúar nokkurra Afríkuríkja vildu að agarannsókninni lyki þar með en niðurstaðan varð að henni skyldi fram haldið.Embættismenn á