Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Listi Framsóknar í Borgarbyggð samþykktur á fjölmennum fundi

Frambjóðendur Framsóknar í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar vorið 2026.Aðsend / Framsókn BorgarbyggðDavíð Sigurðsson, sauðfjárbóndi og hrossaræktandi, er oddviti Framsóknar í Borgarbyggð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Fjölmennur félagsfundur samþykkti lista Framsóknar í kvöld, að því er segir í tilkynningu. Framsókn hefur hreinan meirihluta í sveitarstjórn Borgarbyggðar frá því eftir seinustu kosningar. Guðveig Lind Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar, skipar 18. sætið. Þessi eru í fimm efstu sætunum: 1. Davíð Sigurðsson formaður byggðarráðs Borgarbyggðar og bóndi 2. Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir lögfræðingur 3. Jón Eiríkur Einarsson oddviti Skorradalshrepps og bóndi 4. Guðdís Jónsdóttir bóndi og ritari. 5. Jón Theódór Jónsson framkvæmdastjóri.
Listi Framsóknar í Borgarbyggð samþykktur á fjölmennum fundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta