Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Handtekinn fyrir morðhótanir í garð Donalds Trump

Andrew Emerald, hálffimmtugur bandarískur karlmaður, hefur verið handtekinn fyrir að hóta Donald Trump dauða í alls átta færslum á Facebook. Hann birti færslurnar allar á síðasta ári.Í einni þeirra, sem dómsmálaráðuneytið hefur birt, segir Emerald að verði Trump ekki dáinn og grafinn fyrir 2026 muni hann sjá til þess að svo verði.Í annarri hefur Emerald uppi stóryrði um að brenna Mar-a-Lago til grunna, aðsetur Trumps á Flórída, og í þeirri þriðju hótar hann að halda til höfuðborgarinnar Washington og vega Trump og fjölda fylgismanna hans með sverði.Þá kallar Emerald innanríkishryðjuverkamenn. Emerald veifaði sverði og þvertók fyrir að koma út þegar alríkislögreglumenn komu með handtökuheimild að heimili hans í Massachusetts.Hann lét að lokum undan eftir tiltal lögreglu. Emerald hafði einni
Handtekinn fyrir morðhótanir í garð Donalds Trump

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta