Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flóðbylgjuviðvörun eftir skjálfta af stærðinni 7,4

Jarðskjálfti af stærðinni sjö komma fjórir reið yfir undan austurströnd Indónesíu laust fyrir klukkan sjö að morgni að staðartíma. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Indónesíu og fleiri eyríki.EPA / MADE NAGIJarðfræðistofnun Bandaríkjanna gaf út viðvörun um að allt að eins metra háar öldur geti skollið á svæði í þúsund kílómetra radíus frá skjálftamiðjunni. Hún nær því til Indónesíu, Malasíu og Filippseyja. Flóðbylgjuviðvaranir hafa einnig verið gefnar út fyrir Japan, Taívan og Papúa Nýju Gíneu. Fréttaritari AFP í Norður-Sulawesi héraði kveðst hafa vaknað við skjálftann líkt og aðrir íbúar sem þustu út úr húsum sínum. Hann segir ekki miklar sjáanlegar skemmdir í byggingum þótt skjálftinn hafi varað lengi.
Flóðbylgjuviðvörun eftir skjálfta af stærðinni 7,4

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta