Ný rannsókn á erfðaefni hefur rakið óupplýst morð á táningsstúlku í Utah-fylki í Bandaríkjunum frá árinu 1974 til raðmorðingjans Ted Bundy. Þetta tilkynntu yfirvöld í Utah í dag.Hin 17 ára Laura Ann Aime hvarf á hrekkjavökukvöldi fyrir 51 ári síðan eftir að hún yfirgaf veislu ein til að fara í sjoppu. Um mánuði síðar fann fólk í göngu lík hennar við þjóðveg í American Fork-gljúfri. Aime var bundin, barin og klæðalaus. Yfirvöld sögðu sönnunargögn benda til þess að henni hefði líklega verið haldið á lífi í nokkra daga eftir að henni hafi verið rænt kvöldið örlagaríka.Rannsakendur hafði lengi grunað Bundy og lögreglan sagði hann hafa játað sök í aðdraganda aftöku sinnar. Málið hefur þó verið opið því ekki var hægt að staðfesta sök hans, þangað til í dag. Hver var Ted Bundy? Ted Bundy var einn