Geimfarinu Orion var skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída fyrir skemmstu.Orion, geimflaug Artemis-2 leiðangursins, var skotið á loft klukkan 22:35 að íslenskum tíma eða klukkan 18:35 að staðartíma.Fjórir geimfarar eru um borð í geimfarinu, Bandaríkjamennirnir Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch ásamt hinum kanadíska Jeremy Hansen.Leiðangurinn er fyrsta mannaða ferðin að tunglinu síðan árið 1972.Geimfararnir munu þó ekki lenda á tunglinu heldur ferðast í kringum það. Þeir ferðast því lengra frá jörðinni en í nokkurri annarri mannaðri geimferð í sögunni eða alls um 405 þúsund kílómetra. Áætlað er að leiðangurinn taki tíu daga.„Við förum fyrir allt mannkynið,“ sagði Jeremy Hansen fyrir skotið. Charlie Blackwell-Thompson, stjórnandi geimskots Artemis-leiðangursins, á