Ein stærsta ferðahelgi ársins er fram undan og margir eru þegar farnir í fríið. Ferðum um Keflavíkurflugvöll fjölgar um ríflega fimmtung og Icelandair fjölgar ferðum um þriðjung yfir páskana. Lögreglan hvetur ökumenn til að fara varlega og fylgjast með færð og veðri áður en haldið er af stað.Þá eru margir á ferðinni innanlands, til dæmis á skíði eða á tónlistarviðburði. Aðrir kjósa að halda sig heima. Svo eru aðrir sem fá eiginlega ekkert frí.