Ísland tekur þátt í samstarfsverkefni Evrópusambandsins og 25 Evrópuríkja undir heitinu Joint Action Stockpile - eða samstarf um birgðir - sem miðar að því að efla sameiginlegan viðbúnað gagnvart alvarlegum heilbrigðisógnum. Meðal annars er horft til þess ástands sem skapaðist í Covid-faraldrinum þar sem framboð á lækningavörum reyndist takmarkað og ósamræmis gætti á milli aðgerða einstakra ríkja.Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir slíkt samstarf mikilvægt á óvissutímum.„Við lifum ekki lengur á friðartímum. Það er stríð í Evrópu, það er stríð fyrir botni Miðjarðarhafs. Það geta alltaf komið farsóttir og það mun koma annar heimsfaraldur. Auk þess eru það loftslagsbreytingar og vaxandi sýklalyfjaónæmi. Þannig að neyðarástand getur skapast af ýmsu,“ segir Guðrún. ÞARF OFT LÍTIÐ TIL AÐ KEÐ