Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir víðs vegar um landið sem taka gildi í kvöld og í nótt. Varað er við hvassviðri, úrkomu, snjókomu eða éljagangi, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum.Sú fyrsta er á miðhálendinu frá klukkan 22:00 og gildir til klukkan 18:00 daginn eftir. Önnur hefst á Breiðafirði klukkan 23:00 til 11:00. Á Faxaflóa tekur gul viðvörun gildi klukkan 01:00 til 10:00, á Suðurlandi klukkan 02:00 til 09:00 og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 03:00 til 17:00.„Frá því seint í kvöld verður skafrenningur og blint á Hellisheiði og Mosfellsheiði. Síðar einnig snjókoma. Einnig er vakin athygli á því að í fyrramálið og til um kl. 11 verður mjög hvasst og blint í skafrenningi á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Síðan lægir, en snjóar áfram í 2 til 3 klukkustundir.