Tunglskot mun eiga sér stað á ellefta tímanum í kvöld ef fyrirætlanir bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA ganga eftir. Um er að ræða fyrstu mönnuðu ferðina að tunglinu síðan árið 1972. Geimfarinu Orion verður skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni á Flórída.Fjórir geimfarar verða í geimfarinu og það eru þau Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch frá Bandaríkjunum ásamt hinum kanadíska Jeremy Hansen.Geimfararnir munu þó ekki lenda á tunglinu heldur ferðast í kringum það. Þeir ferðast því lengra frá jörðinni en í nokkurri annarri geimferð í sögunni eða alls um 405 þúsund kílómetra. Áætlað er að leiðangurinn taki tíu daga.Gert er ráð fyrir að geimfarinu verði skotið upp eftir klukkan 23:20 í kvöld. Veður gæti þó haft einhver áhrif á hvenær skotið á sér stað.