Jarðskjálfti að stærð 2,9 mældist fjórum kílómetrum suðaustan af Skálafelli skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld.Fregnir hafa borist af því að skjálftinn hafi fundist vel í byggð, til að mynda í Hveragerði og á Selfossi. Skjálfti að stærðinni 2,3 mældist um tuttugu mínútum síðar, 3,4 kílómetrum norð-austan af Skeggja á Hengli.