Ágætlega var mætt á sameiginlegan íbúafund Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar um Finnafjarðarverkefnið í gær. Sérstakir gestir fundarins voru meðal annars Robert Howe, forstjóri þýska fyrirtækisins Bremenports og Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Eflu.„Þetta var bara mjög góður fundur og mikilvægur fundur á þessum tímapunkti. Það var bara ágætis mæting. Það voru um 30 manns í salnum og svo var töluvert af fólki að horfa í streymi,“ sagði Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, varaoddviti Langanesbyggðar og fundarstjóri.Fundinum, sem fram fór á Þórshöfn, var einnig streymt og voru fjölmargir sem horfðu í gegnum streymi að sögn Halldóru Jóhönnu Friðbergsdóttur, sem var fundarstjóri í gær. Leiðinleg færð var á Hófaskarðinu sem orsakaði mögulega að færri komust en ætluðu sér. V