Mæður sem voru ættleiddar frá Srí Lanka sem kornabörn eru stöðvaðar í hvert skipti sem þær fara í gegnum landamæraeftirlit og segja það augljóst að húðliturinn skipti þar höfuðmáli. Þær hafa áhyggjur af börnum sínum sem þær segja verða fyrir meiri rasisma en þau upplifðu í æsku.