Icelandair upplýsti í morgun að félagið ætti í viðræðum um kaup á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe þar sem helstu verðmætin eru flugrekstrarleyfi á Möltu. Haft var eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að kaupin gætu opnað ný viðskiptatækifæri, einfaldað starfsemina á Íslandi og að slíkt skapaði tækifæri til hagræðingar. ÞROTABÚ PLAY FÆR SINN SKERF Viðræður Icelandair eru við skuldabréfaeigendur sem lögðu hinu fallna Play til 2,8 milljarða í skuldabréfaútboði gegn tilteknum veðum, meðal annars áðurnefndu dótturfélag á Möltu. Í stað þess að standa í tímafrekum dómsmálum var ákveðið að gefa skuldabréfahöfum tækifæri til að koma félaginu á Möltu í verð; þrotabú Play og þar með kröfuhafar fengju síðan sinn skerf yrði af viðskiptunum.Icelandair og rekstur félagsins hefur verið tö