Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirstrikar að Atlantshafsbandalagið (NATO) sé öflugasta varnarbandalag seinni tíma.Donald Trump Bandaríkjaforseti kvaðst íhuga alvarlega að draga Bandaríkin úr NATO, sem sé pappírstígur að hans mati. En gremja forsetans gagnvart bandalagsríkjum virðist fyrst og fremst vera vegna tregðu þeirra til að blanda sér í átökin í Íran.„Ég ætla nú að fara varlega í allar yfirlýsingar, annað en að það er mikilvægt að hafa í huga að þetta varnarbandalag hefur verið farsælt fyrir öll aðildarríkin og þar með talið Bandaríkin,“ segir Þorgerður Katrín spurð hvort fullyrðingar forsetans séu áhyggjuefni fyrir Ísland.Hún segir Ísland taka skuldbindingar sínar alvarlega og ríki Evrópu og Kanada hafi stigið verulega upp á síðustu árum.En bara svo það sé skýrt.