Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verða að borga bæði kennara og nemanda vegna kinnhests á skólatíma

Dalvíkurbyggð var í gær dæmd til að greiða stúlku 450 þúsund krónur í miskabætur. Kennari sló stúlkuna utan undir þegar hún var þrettán ára, fyrir nokkrum árum.Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi stúlkunni í vil. Þetta eru önnur málaferlin sem hafast af atvikinu. Í því fyrra dæmdi Hæstiréttur sveitarfélagið til að greiða kennaranum 11 milljónir króna í bætur vegna ólöglegrar uppsagnar.Kennarinn taldi stúlkuna trufla kennslu þar sem hún sat á grasflöt við fótboltavöll þar sem nemendur léku fótbolta. Íþróttakennarinn mun hafa beðið stúlkuna um að fara en samskiptum þeirra lokið með því að stúlkan gaf kennaranum kinnhest og var svarað í sömu mynt af kennaranum.Kennarinn var rekinn úr starfi og fór í mál við bæinn. Hún tapaði málaferlunum í Landsrétti en Hæstiréttur dæmdi henni í vil. Dómarar
Verða að borga bæði kennara og nemanda vegna kinnhests á skólatíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta