Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa óskað eftir vopnahléi og ætlar að halda ávarp um stöðuna í stríðinu í kvöld. Írönsk stjórnvöld segja ekkert hæft í fullyrðingum Trumps.Stríð Ísraela og Bandaríkjanna gegn Íran hefur staðið síðan í lok febrúar og óbeinar viðræður Bandaríkjanna og Írans virðast litlu skila.Trump sagði í færslu á Truth Social í dag að nýr forseti Írans hefði beðið Bandaríkin um vopnahlé. Hann kvaðst ætla skoða þetta þegar Íranir hefðu opnað fyrir skipaflutninga um Hormússund.Margir klóruðu sér í höfðinu yfir þessu, ekki síst vegna þess að forseti Írans, Masoud Pezeshkian, hefur setið í því embætti síðan sumarið 2024.Æðstiklerkurinn Mojtaba Khamenei, hins vegar, er nýlega tekinn við eftir að faðir hans var felldur í árásum Bandaríkjanna og Ísraels. Æð