Garðar Cortes fæddist árið 1940 og lést 2023. Hann stundaði söngnám í Englandi og kom heim frá námi árið 1969. Eftir að hann stofnaði Söngskólann í Reykjavík 1973 var hann skólastjóri hans til ársins 2022. Garðar var einnig óperustjóri Íslensku óperunnar í mörg ár og þar sem hann var einn af helstu tenórsöngvurum landsins söng hann oft aðalhlutverk í sýningum hennar. Auk þess stjórnaði hann kórum og hljómsveitum. BÓNDI – FLUGUMFERÐARSTJÓRI – PRESTUR? Ætla mætti að Garðar hefði frá blautu barnsbeini stefnt á það takmark að verða söngvari. Því varð útvarpsmaðurinn Jónas Jónasson dálítið undrandi árið 1981 þegar Garðar Cortes var gestur í þætti hans „Kvöldgestir“ og Jónas spurði hann hvað hann hefði langað til að verða á bernskuárunum. „Bóndi, frá upphafi!“ svaraði Garðar um hæl. En framtí