Starfsfólk hjartadeildar Landspítalans tók á móti páskaeggjum í dag. Alls hefur 7.000 páskaeggjum verið dreift til starfsfólks spítalans.AðsendStarfsfólk Landspítalans hefur fengið afhent sjö þúsund páskaegg frá sælgætisframleiðendunum Góu og Omnom. Síðasta sending þeirra var keyrð út í dag, til hjartadeildarinnar.Fyrr í mánuðinum greindi Morgunblaðið frá því að vegna niðurskurðar fengju starfsmenn ekki páskaegg frá Landspítalanum eins og tíðkast hefur. Úrræðið var sagt vera til að mæta þriggja til fjögurra milljarða króna niðurskurðarkröfu ríkisstjórnarinnar. Um stærsta vinnustað landsins er að ræða.Ákvörðunin sætti harðri gagnrýni og brugðust sælgætisframleiðendurnir tveir við með því að framleiða páskaegg og gefa starfsfólki spítalans.