Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ekkert annað en leið til að ná í peninga“

Viltu verða áskrifandi að miðlum Meta eða halda áfram að sjá auglýsingar? Þessi spurning blasir við notendum Facebook á Íslandi og eflaust víðar í Evrópu í dag. Til þess að skoða Facebook-vegginn sinn virðast notendur því þurfa að taka afstöðu til þess hvort þeir vilji greiða 900 krónur á mánuði til að koma í veg fyrir að persónugögn þeirra verði notuð í auglýsingaskyni.Guðmundur Jóhannsson tæknisérfræðingur segir þessi skilaboð tengjast innleiðingu Meta á notkun gagna frá notendum í Evrópu, sem var tilkynnt í fyrra en í raun ekki boða neitt nýtt. Meta hafi fengið skammir í hattinn frá Evrópusambandinu vegna breytinganna, þar sem þær voru taldar brjóta gegn lögum um stafræna markaði.„Í raun mætti bara segja að þessi áminning sem er að reyna að fá þig til að greiða áskrift, þetta er í raun
„Ekkert annað en leið til að ná í peninga“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta