Richard Schwennicke hefur verið ráðinn tónlistarstjóri Óperunnar. Hann er hljómsveitarstjóri og píanóleikari sem hefur undanfarin ár starfað sem repetitör, söngþjálfari og hljómsveitartsjóri við Vínaróperuna. Þetta segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.„Richard hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum sem stjórnandi og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann talar fjölda tungumála, þar á meðal íslensku, og hefur jafnframt aflað sér mikillar þekkingar í samstarfi við fremstu stjórnendur Evrópu á sviði óperu,“ segir í tilkynningunni.Þar er enn fremur haft eftir Finni Bjarnasyni óperustjóra að hann hlakki til samstarfsins. „Það er mikill fengur fyrir Óperuna að fá Richard Schwennicke til liðs við sig. Hann mun eiga virkan þátt í uppbyggingu starfseminnar og þar mun reynslan se