Vegagerðin hefur gert samning við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar til 2029. Fyrirtækið vann áður að dýpkun hafnarinnar árin 2015 til 2018.Fjögur tilboð bárust í verkið sem felur í sér reglubundna dýpkun á hafnarsvæði og nágrenni hafnarinnar. Áætlað er að árlegt dýpkunarmagn sé á bilinu 250 til 500 þúsund rúmmetrar.Skipið sem sér um dýpkunina heitir Sebastian Cabato. Það var byggt 2011 og er 93 metrar að lengd og 19,8 metrar að breidd. LANDEYJAHÖFN ENN LOKUÐ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir þetta góð tíðindi fyrir samgöngur til Eyja.„Þetta hefur bara gríðarlega mikla þýðingu. Þetta eru mjög jákvæðar fréttir. Belgarnir hafa verið hjá okkur áður og búa yfir mikilli tæknilegri getu, góðum skipakosti og reynslu. Þannig að þetta eru bara