Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

19 fundust látnir á Miðjarðarhafi

Ítölsk yfirvöld hafa fundið líkamsleifar 19 flóttamanna um borð í bát undan strönd eyjarinnar Lampedusa á Miðjarðarhafi. Bæjarstjóri Lampedusa greindi frá þessu í dag. Talið er að fólkið hafi dáið úr ofkælingu. Sjö aðrir, þar á meðal tvö börn, fundust á lífi og voru flutt til aðhlynningar.Í fyrra létust 27 þegar tveir bátar fórust skammt undan Lampedusa.Eyjan er algengur viðkomustaður fólks sem freistar þess að komast frá Norður-Afríku til Evrópu. 624 hafa látið lífið eða týnst við að reyna að komast yfir Miðjarðarhafið það sem af er ári, samkvæmt gögnum Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar, IOM.Ítalska innanríkisráðuneytið segir rúmlega 6.100 flóttamenn hafa komið þessa leið til landsins frá áramótum.
19 fundust látnir á Miðjarðarhafi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta