Í dag er 1. apríl og því við því að búast að fólk, fyrirtæki og stofnanir reyni að láta sem flesta hlaupa apríl. Sumt gabb er auðveldara að sjá í gegnum en annað en svo virðist sem aprílgabb Morgunblaðsins hafi látið einhverja hlaupa á skrifstofu Skattsins.Í blaðinu birtist frétt undir fyrirsögninni „Niðurfelling kílómetragjalds fær“ en þar er haft eftir Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra að unnt sé að sækja um afslátt eða jafnvel niðurfellingu kílómetragjalds hjá Skattinum vegna „sérstakra aðstæðna“ með því að fylla út eyðublað sem hægt er að sækja hjá afgreiðslu Skattsins.Skatturinn hefur birt tilkynningu á vef sínum og áréttað að fréttin sé aprílgabb á vegum Morgunblaðsins, en fjármálaráðherra kveðst hafa vitað af gabbinu, þó hann hafi ekki verið með í ráðum. Svo virðist sem starfs