Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þúsundir Íslendinga í snemmbúið páskafrí

Ætla má að þúsundir Íslendinga séu á faraldsfæti um helgina. Bráðabirgðatölur Vegagerðarinnar sýna að umferð á helstu umferðaræðum hefur dregist saman um 20 til 30 prósent á milli vikna.Páskahelgin er ein helsta ferðahelgi ársins og er til að mynda eini tími ársins þar sem bílastæðin við Keflavíkurflugvöll fyllast. Á tímabilinu 28. mars til 10. apríl fara 120 flug frá Keflavík til áfangastaða í sólina og annað eins til flugvalla í grennd við Alpana þangað sem skíðaþyrstir Íslendingar sækja gjarnan.Eins ferðast fjölmargir innanlands, hvort sem það er á skíði fyrir norðan eða á Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Nú eða í sumarbústað í Grímsnesi.Þeir sem standa vaktina í atvinnulífinu hafa vafalaust tekið eftir að umferðin í morgun og síðustu daga hefur verið töluvert léttari en venjulega. Það s
Þúsundir Íslendinga í snemmbúið páskafrí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta