Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vill að stjórnvöld lækki kolefnisgjaldið „hressilega“

Eldsneytisverð hefur hækkað skarpt á undanförnum dögum vegna stríðsins í Íran. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, vill að stjórnvöld grípi inn í miklar verðhækkanir líkt og aðrar þjóðir hafa gert undanfarið.„Við erum því miður að sjá að þessi hækkunarfasi sem við erum að horfa á að verðið hækkar á hverjum degi. Hann er rétt að byrja og þetta á eftir að koma enn verra niður á heimilum og fyrirtækjum í landinu á næstu vikum að óbreyttu.“Hann segir að hugsa verði í lausnum líkt og nágrannaþjóðir okkar hafa gert.„Okkar tillaga er að kolefnisgjaldið verði lækkað hressilega. Það var helmingi lægra í lok árs 2024 og hækkunin hefur verið snörp.“Runólfur var gestur Kastljóss í gær. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Vill að stjórnvöld lækki kolefnisgjaldið „hressilega“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta