Verði frumvarp um vefverslun með áfengi samþykkt mun það auka þjáningu einstaklinga í samfélaginu, draga úr virkni forvarna og auka drykkju ungmenna. Það mun einnig stórauka kostnað í heilbrigðiskerfinu vegna beins og óbeins skaða af völdum notkunar á áfengi. Þetta mat kemur fram í umsögn embættis landlæknis um frumvarp Gríms Grímssonar og fleiri þingmanna.