Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra segir að ekki hafi verið haft samband við hann vegna aprílgabbs sem Morgunblaðið og mbl.is birti í morgun.Í frétt á síðu 2 í Morgunblaðinu í dag er sagt að hægt er að fá afslátt á kílómetragjaldinu eða það hreinlega fellt niður vegna „sérstakra aðstæðna“. Það mætti gera með því að fylla út eyðublað sem finna mætti í afgreiðslu Skattsins. Skatturinn hefur þegar tilkynnt á heimasíðu sinni að um gabb hafi verið að ræða.„Það hafa nú verið alls konar aprílgöbb í gegnum tíðina og þetta er góður gamall íslenskur siður og það að ég verði fyrir þessu einu sinni, ég get ekki erft það við fjölmiðla,“ segir Daði.Í viðtalinu sagðist Daði ekki hafa verið með í ráðum í gabbinu. Fram hefur þó komið að hann vissi þó af áætlunum MBL fyrir fram. Daði hefur