Siglfirðingar stefna ótrauðir á að geta boðið uppá glæsilega páskadagskrá á skíðasvæðinu í Skarðsdal. Mikið verk er framundan að vinna brekkur, opna vegi og troða allt það magn af snjó sem kyngt hefur niður undanfarnar vikur.„Ef það er einhvern tímann of mikið af snjó er það núna,“ segir Birgir Egilsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Skarðsdal. Starfsmenn hans vinni hörðum höndum að því að opna svæðið. „Dag, kvöld og troðaramenn á nóttunni.“Skíðasvæðið í Skarðsdal við Siglufjörð er á kafi í snjó. Þeir stefna á að ná að opna svæðið um páskana enda aðstæður til skíðaiðkunnar frábærar.Ekki hefur verið hægt að hafa opið á skíðasvæðinu í Skarðsdal í nokkrar vikur sökum veðurs og vinda. Veðurspáin fyrir páskana er hins vegar góð og stefna heimamenn á að opna lyfturnar í síðasta lagi á föstudagi