Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Addams-fjölskyldan hreiðrar um sig hjá Húnvetningum

Leikflokkur Húnaþings vestra setur upp gamansöngleikinn um Addams-fjölskylduna um páskana. Þetta er í fyrsta sinn sem söngleikur um fjölskylduna er settur upp á Íslandi. Frumsýning verður í kvöld, 1. apríl í samkomuhúsinu á Hvammstanga.Það er ótrúlegur kraftur í félögum í Leikflokki Húnaþings vestra eins og leikfélagið heitir en félagið hefur til dæmis tvisvar sinnum unnið áhugaleiksýningu ársins, sem valin er af Þjóðleikhúsinu, en það voru sýningarnar um Pétur Pan og Hárið. Nú er það gamansöngleikurinn um Addams- fjölskylduna en leikstjóri er Sigurður Líndal, sem þýddi verkið yfir á íslensku.„Þetta er bara mjög skemmtilegt verk en við vorum að leita að einhverjum skemmtilegum söngleik til að setja upp en það er mikil hefð fyrir söngleikjum hér en síðustu tíu árin er búið að setja upp marg
Addams-fjölskyldan hreiðrar um sig hjá Húnvetningum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta