Þegar lífeyrissjóðir þurfa að tryggja 3,5% raunávöxtun til langs tíma og greiða út lífeyri með verðtryggingu er eðlilegt að þeir sækist eftir verðtryggðum skuldabréfum í eignasöfn sín. Sú eftirspurn mótar skuldabréfamarkaðinn, hækkar langtímavexti og hefur bein áhrif á kjör heimilanna.