Uppkomin börn konu sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segja að gögn úr kvörtunarmáli sem þau höfðu frumkvæði að nýtist ekki við saksókn gegn lækni sem ákærður var fyrir manndráp vegna lagabreytinga.Beggi Dan Gunnarsson, Borghildur H. Hauksdóttir, Eva Hauksdóttir og Hugljúf Dan Jensen eru börn Dönu Jóhannsdóttur sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019. Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir hefur verið ákærður fyrir manndráp vegna dauða hennar. Hann sætti rannsókn vegna gruns um að bera ábyrgð á dauða sex sjúklinga sinna en mál fimm þeirra voru felld niður.Systkinin sendu í dag frá sér yfirlýsingu þar sem þau gagnrýna lagabreytingu sem bannar lögreglu að nota rannsóknargögn frá landlæknisembættinu við rannsókn sakamála. Þau segja að það sé bagalegt í þessu máli þar sem gögn kvört