Friðjón B. Gunnarsson, lögfræðingur fjölskyldu sem telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni, segir málið mögulega ekki einsdæmi. Fjölskylda konu á Selfossi hafi haft samband við hann í gær vegna svipaðs máls. Hann vinni nú að því að afla gagna en segir þar konu hafa látist og sjúkrabíll hafi verið tuttugu mínútur á leiðinni. Rætt var við Friðjón í Bítinu á Bylgjunni í morgun.