Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist íhuga alvarlega að draga Bandaríkin úr NATO þar sem önnur aðildarríki aðstoðuðu Bandaríkin ekki í stríði þeirra gegn Íran. Trump segir bandalagið vera pappírstígur. Hann átti sig vel því og segir Pútín Rússlandsforseta gera það sömuleiðis. Í viðtali við breska blaðið Telegraph segir Trump að Bretar „eigi ekki einu sinni sjóher. Þið eruð of gömul og áttuð flugmóðurskip sem virka ekki.“Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, brást við þessum orðum Trumps í morgun með því að segja að „NATO er skilvirkasta hernaðarbandalag sem sést hefur í heimssögunni.“„Það hefur tryggt öryggi okkar í áratugaraðir og við erum að fullu skuldbundin NATO,“ sagði Starmer ennfremur.Trump hefur áður lýst þessum skoðunum en þó sjaldnast með eins eindregnum hætti og í við