Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lykilmaður í innherjasvikum hjá Icelandair dæmdur fyrir skattsvik

Kristján Georg Jósteinsson hlaut í síðustu viku átta mánaða dóm fyrir stórfelld skattalagabrot. Sannað þótti að hann hefði vantalið tekjur sínar um 87 milljónir króna og þannig komið sér hjá því að borga tekjuskatt og útsvar upp á 39 milljónir. ÁÐUR DÆMDUR FYRIR INNHERJASVIK OG FJÁRHÆTTUSPIL Kristján Georg hefur áður komist í fréttir vegna afbrota.Hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi 2019 fyrir þátt sinn í innherjasvikamáli hjá Icelandair. Hann hlaut þyngsta dóminn af þremur sem voru sakfelldir fyrir þau brot, einn þeirra var millistjórnandi hjá flugfélaginu. Þá gerði dómurinn 32 milljónir króna upptækar af reikningum fyrirtækisins Fastrek sem var í hans eigu.Kristján Georg var einnig dæmdur í átján mánaða fangelsi 2016 fyrir fjárhættuspilastarfsemi og peningaþvætti. PÓKER
Lykilmaður í innherjasvikum hjá Icelandair dæmdur fyrir skattsvik

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta