Þessar vikurnar eru mörg ungmenni að velta framhaldinu fyrir sér, ekki síst krakkar sem eru að ljúka grunnskóla. Að mörgu er að hyggja enda framhaldsskólarnir um 30 talsins og brautirnar ólíkar. Langflest sækja um bóknám sem er engin furða þar sem þau hafa litla reynslu eða vitneskju um hvað felst í starfsnámi.„Af hverju vilja þau síður fara í starfsnám,“ spyr Stella Blöndal, prófessor við félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Hún segir að hún sé ekkert endilega að tala um að það sé mjög skynsamlegt að fara í starfsnám þegar ungmenni eru 16 ára.Hún segir að bóknám hafi alltaf borið höfuð og herðar yfir verknám virðingarlega séð og Elsa Eiríksdóttir, prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, tekur undir það í fjórða þætti Kerfisins á Rás 1.Í skýrslu starfshóps um innritun í starfsnám, se