Donald Trump segist verða viðstaddur munnlegan málflutning fyrir hæstarétti Bandaríkjanna í dag vegna tilskipunar hans um brottfellingu laga um að nær öll börn fædd þar fái sjálfkrafa ríkisborgararétt. „Ég ætla að mæta,“ sagði Trump aðspurður við fréttamenn í gær. Hann undirritaði á fyrstu dögum síðari forsetatíðar sinnar tilskipun um að sjálfkrafa ríkisborgararéttur taki ekki til barna fólks sem hefur tímabundna vegabréfsáritun eða telst hafa ólöglega dvöl í Bandaríkjunum. Stjórnarskrárákvæðið tekur ekki til erlendra sendiráðsstarfsmanna og fullvalda ættbálka frumbyggja. Málið er sögulegt enda hafa bæði alríkis- og áfrýjunardómstóll ógilt tilskipunina og sagt hana stangast á við borgaraleg réttindi tryggð í 14. viðauka stjórnarskrárinnar. Þau réttindi gæti forseti ekki afturkallað með til