Matvælaverð lækkar í Svíþjóð í dag vegna þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt úr tólf í sex prósent tímabundið til ársloka 2027. Sænskir og danskir fjölmiðlar hafa eftir verslunarfólki að heilmikið verði að gera í dag við að skipta út verðmerkingum.Skattalækkunin gildir ekki aðeins um allan mat sem seldur er í verslunum heldur einnig um tilbúna fæðu sem fólk tekur heim með sér af skyndibita- og veitingastöðum en ekki ef sest er til snæðings.Það hefur valdið nokkurri reiði meðal veitingamanna, samkvæmt umfjöllun SVT, sem finnst óeðlilegt að sams konar pizza sé skattlögð með ólíkum hætti, 12 eða 6 prósent, eftir því hvar hún er etin. Virðisaukaskattur á veitingar var lækkaður úr 25 í 12 prósent árið 2012.Svíar hafa einnig áhyggjur af því hversu lengi verðlækkunin va